Ákvað að skrifa eina svona áður en haldið væri til Spánar!
Það er sem sagt í nótt sem ég flýg til la Santa! Ég sit
núna í seinasta stærðfræði tíamnum mínum fyrir jól! Þetta er
seinasti skóladagurinn minn fyrir jól þar sem ég ákvað að koma
semma heim a klakann. Bara daginn eftir að ég kem fra Spánlandi!
Sem þýðit að ég missi af eina prófinu mínu!
Seinustu helgi var ég í jólaboði með unglingaflokki karla og
kvenna.. Og það var rosalega huggulegt!

En mesta frétt vikunnar er sú að herbergisfélaginn minn hún
Henriette kom mér rosalega á óvart í vikunni.. Við höfum svona
undafarnar vikur farið að tala meira og meira saman.. Þá komst ég
að því að hún er rosalega fræg söngkona á Spáni.. Og það er bróðir
hennar líka sem er bara súper heitur!! Við erum að tala um það að
þegar hún fer til Spánar þarf´hún bodyguard. Hún var líka fyrir
einu og hálfu ari algjör gella áður en hún meiddist og fór að bæta
á sig.. Hefur sungið 2 sinnum dúet með Aron Carter!! Halló ég bý
með henni!!! Hefur líka sungið coca cola auglýsingu!! Ég er
FRÆG!!

Ég er komin í svo mikið jólaskap að ég geri ekki annað en að
hlusta á jólalög og Gréta er farin að ganga með jólasveinahúfu upp
á hvern dag.. Keypti einmitt einn jóladisk Now Christmas! Mæli
eindregið með honum! Finnst lika að allir þurfi að eiga eintak af
lögunum Jul i angora með drengene fra angora og
Jul det cool með Mc Einar.

Það eru aðeins 9 dagar í heimkomu og get varla beðið!
- Íslenskur jólamatur..mmmm...
- Íslenskur vesturbæjarís..
- Íslenskt vatn...
- Íslenskst loft..
- Íslenskt veður.. eða ekki
- Íslenskt fólk allt í kring
- Íslenskur kristall plús
- Íslenskar kökur!
- Íslenskt sjónvarp
- Íslenskir drengir
- Íslenskir vinir
- Íslensk ma og pa
- Íslenska rúmið mitt
Okay vá nóg um þettta gæti haldið endalaust áfram..
Var að pæla hvað ég er orðin mikill sjónvarpssjúklingur! Sumir
vissu alveg heima að ég fylgdist með Bold and beautiful þegar tími
gafst.. Hérna horfir maður á Fraiser, Bold and beautiful, Lost,
Beverly hills, 7 th. heaven, Bill Murrey þáttinn og svo er ég
búin að horfa á desperate wives og O.C. dæmið allt!! Hversu lágt
legstu ef maður er farin að fylgjast með Fraiser!!??
Varð að setja annað ljóð inn
Dreams
Hold fast to dreams
For if dreams die
Life is a broken-winged bird
That cannot fly
Hold fast to dreams
For when dreams go
Life is barren field
Frozen with snow
-Langston
Hughes
Annars vil ég bara óska
ykkur öllum góðs gengis í prófunum á meðan ég ligg á
sundlaugarbakkanum á Spáni! Hlakka til að sjá ykkur öll heima eftir
9 daga!
Knus Elín